

Moleskine: alveg yndislegar skrifblokkir sem er hægt að nota í bókstaflega allt. Þessar skrifblokkir eiga sér líka alveg svakalega sögu, en hvorki minna né meira þekktari menn en Hemingway og Van Gogh notuðu þessar bækur til að festa hugmyndir sínar á blað.
Tré: ég elska tré, það er í raun og veru ekki hægt að segja það á neinn annan máta. Kannski frekar kjánalegt að búa á landi þar sem að planta sem er hærri en 50 cm telst sem tré, en það eru þessi allra stærstu tré sem eiga hug minn allan. Nágranni mitt er einmitt með yndislegasta tré í heimi í sínum garði og teygir það nokkrar greinar sínar yfir í okkar garð. Ótrúlega fallegt tré sem blómstrar í gulu á hverju sumri.
Mugison: Fór á tónleika með Mugi og félögum á Nasa síðasta föstudag, annað sinn í þessum mánuði sem ég sé þessa mögnuðu tónlistarmenn spila saman. Setlistinn þeirra var sá nákvæmlega sami og á Hróarskeldu fyrr í mánuðinum og ekkert í raun hægt að setja út á það þar sem að þetta var mjög gott set. Nú langar mig bara að sjá Pétur Ben sóló, en verð víst að bíða eitthvað eftir því þar sem að hann er að skella sér í barneignarorlof.
Litir: Nú eiga einhverjir eftir að segja eitthvað. Ég, manneskjan sem takmarkaði fatavalið eitt sinn við svart og hvítt, vil fátt annað en liti núna. Örugglega eitthvað hægt að kenna góðu sumri um, það er bara eitthvað svo gaman að vera litríkur úti í sólinni og náttúrunni.
Óplönuð ferðalög: Fátt skemmtilegra en óplönuð ferðalög út á lönd, jafnvel bara dagsferðir. Fór í gær með Hildi og Sonju út í Sandvík þar sem við tröðkuðum berfættar í gegnum svartan sandinn og fylgdumst með öldunum og mávunum og allt í afskaplega góðu veðri.
(Things I love Thursday er vikulegur hlutur á bloggi sem ég les frekar oft, Icing , og mér fannst þetta bara svo góð hugmynd að ég er að pæla í að fara bara að fordæmi hennar og hafa þetta vikulegan hlut á mínu bloggi líka.
)