skada ikkje at prova..
21.12.2005 18:21:37 / helgah

Jólabloggið

Í dag er ég búin að:

  • Ryksuga allt húsið
  • Skrifa á jólakort til 10 heppinna vina minna (fann pakka með 10 jólakortum... sumir eru heppnir að fá, aðrir ekki. :P ;) )
  • Pakka inn risavaxinni gjöf handa litlu frænku minni.
  • Klára að pakka inn restinni af gjöfunum og skrifa á milljón merkimiða.
  • Taka til í herberginu mínu.
  • Jóla-skreyta herbergið mitt.
  • Setja upp lítið jólatré í herberginu mínu.

Og núna erum við pabbi að fara að skreyta jólatréð uppi í stofu. Ah, já. Maður finnur að jólin eru að koma. Enda bara 3 dagar í þessa miklu hátíð jólanna. Fyrst verður samt svona mini hátíð og nokkurs konar upphitun fyrir jólin hjá honum Sigfúsi, elsta bróður mínum, sem á afmæli 23.desember, þeim yndislega skemmtilega degi. :P

Alla veganna, svona in case að ég kem ekki aftur hingað fyrir jól (allar líkur á því), þá vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla!  :)

Jólakveðjur,

Helga


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 02:55:53 / helgah

Juicebox - The Strokes

Ég held ég vilji barasta ekki fá einkunnirnar mínar á morgunn.

Já, ég held það bara.

Þegar kennarinn ætlar að láta mig fá einkunnablaðið mitt á morgunn...
þá ætla ég að segja "nei takk" og ganga út.

Já...ég held það bara....


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 19:00:16 / helgah

...

Af hverju eru það alltaf þeir góðu sem að þurfa að deyja? Sem þurfa að fara?

:cry:

Fokk, hvað lífið er ógeðslega viðkvæmt...

Ég er svo ekki í stuði til að skemmta mér í kvöld.


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 02:00:35 / helgah

Say it ain't so - Weezer

Jesús Kr. Jósepsson, hvað ég get ekki farið að sofa akkúrat núna.

Er að fara í seinasta prófið mitt á morgunn, upplýsingafræði, og var að klára að lesa glósurnar áðan. Var eitthvað smá þreytt þannig að ég ákvað að vera voða sniðug og smakka eitthvað café latte sem að mamma átti í svona bréfi. Ég drekk ekki kaffi og mér finnst það þvílíkur viðbjóður, en stundum þegar ég er í prófum og nenni ekki að fara og kaupa mér Magic þá píni ég þessu ofan í mig.

Heimskulegasti hlutur sem ég hef gert í langan tíma. (bíðið aðeins, kisa vill láta klappa sér..... ok, komin aftur) Ég kláraði að lesa glósurnar á tíu mínútum og sit núna uppí rúmi hlustandi á Weezer í botni, ekki vottur af þreytu í líkamanum.
Oh, that's so gonna hurt in the morning.

En hey, at least þá fæ ég að fara heim strax eftir prófið og sofa til svona tvö, þangað til að mamma kemur heim úr vinnunni. :) Þá er ég að pæla í að kíkja niðureftir í Gyllta köttinn, sem að kona Hauks frænda míns á, því að það eiga víst að koma stígvél þangað í minni stærð í þessari viku. :P Það þarf svo lítið til að gleðja mig...

Svo er það bara partý hjá Sonju og svo jólaballið á Gauknum um kvöldið.

Eða eins og Damon Albarn sagði í Song 2 með Blur: "Woohoo!!"

Kveðjur í stuði klukkan 2,

Herbz..

 

ps. Þvílíkar hamingjuóskir til Andys, gítarleikara Travis-anna minna, sem var að eignast fyrsta barnið sitt, strák sem var skírður Dylan Green Dunlop. :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 13:50:42 / helgah

Plane - Jason Mraz

Okei, ég er búin að vera að fresta þessu svo lengi af því að ég er beinlínis svolítið hrædd við þetta. En núna hef ég séð þetta á svo mörgum bloggum og af því að hún Dagný mín var svo yndisleg að gera alveg yndislega svona umsögn um mig, þá hef ég ákveðið að láta svona hingað inn líka. :)

ok, svona er þetta víst. Kommentaðu og ég reyni að segja þér....

1) ...eitthvað handahófskennt um þig
2) ...hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3) ...hvaða lykt minnir mig á þig
4) ...fyrstu ljósu minningu mína af þér
5) ...hvaða dýr minnir mig á þig
6) ...spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér

Ég lofa samt ekki að gera um alla ef að það verður of mikið um þetta... En ég skal reyna. Nema með Heiði. Af því að hún gerði ekki um mig. Sagðist ætla að gera það en gerði það aldrei. Hnuss. :P

Annars var stærðfræðiprófið í dag og það gekk bara alveg ágætlega, sem kom mjög á óvart miðað við það að ég er grútléleg í stærðfræði og lærði bara eiginlega ekkert fyrir þetta próf. Verð samt alveg sátt við venjulegu 5-una. :)

Svo er það bara markaðsfræði á morgunn, svo enska og að lokum upplýsingafræði á fimmtudaginn með jólaballinu á Gauknum um kvöldið. :)

Jæja, ég er farin að læra. Tími til kominn....

Kv,

Helga


» 25 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 19:28:15 / helgah

11.desember 1987 - 11.desember 2005

Kristjana Guðrún Arnardóttir, betur þekkt sem Nana, Anti Penis eða forystumaður gleraugnaglámanna í máladeildinni , er 18 ára og því orðin sjálfráða.

Brighteye síðan óskar Kristjönu Guðrúnu hjartanlega til hamingju með að hafa náð þessum stóra og glæsta áfanga í lífinu og tileinka ég þér því þessa mynd.

Til hamingju, miss Arnardóttir. :)

pís át,

Helga...


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 17:27:32 / helgah

You may say I'm a dreamer but I'm not the only one...

"John Lennon was brought to the Emergency around 11 o'clock. He was dead at arrival..."

Í dag eru 25 ár síðan þessi maður, þessi friðarsinni og einn mesti tónlistarmaður sögunnar var skotinn til bana í New York.

Þvílíkur missir...

lög dagsins:

Imagine m/John Lennon,
Across the Universe m/John Lennon,
Look at me m/John Lennon.

RIP


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 12:57:01 / helgah

You said the union forever...

Ég held að heilinn á mér taki ekki við meiri fróðleik eða upplýsingum. Núna á síðastliðnum dögum er ég búin að lesa þvílíkt mikið og leggja ekkert smá mikið á minnið... heilinn á mér segir stopp núna.

Það sýndi sig og sannaði á alþjóðafræðiprófinu í dag sem mér gekk ekkert alltof vel á. Fyrsta prófið í ár þar sem ég las yfir fyrstu blaðsíðuna og skildi ekkert (Nema þetta með Sharia lögin í Súdan! vúhú! Viva Sudan!).

Tókst samt að skrifa alveg slatta í ritgerðarspurningunum sem voru um afleiðingar hnattvæðingu annars vegar og hins vegar vandamál og einkenni þróunarlanda. Var alveg að missa mig í að skrifa þar. Tókst meira að segja að vitna í hann Franny minn í ritgerðinni um þróunarlöndin.

Annars er ég að farast úr þreytu akkúrat núna og er að pæla í að leggja mig í smá stund. Fara svo að læra frönsku... jafnvel fara til Hildar og Eydísar og læra með þeim... sé til....

Svo er það bara jólagjafaverslunarleiðangur með Sonju eftir prófið á morgunn! get ekki beðið! :D

 

I am Indie Girl

Click on the picture below to read more:

Indie Girl

Take">http://www.cookingtohookup.com/quiz/forgirls.php">Take the 'What Kind of Girl Are You?' quiz at CookingToHookup.com



Allir svo að taka þetta próf og segja mér hvað þið fenguð... Voða skemmtilegar 'skilgreiningar' eitthvað... (Árni, þú mátt líka taka þetta og segja mér svo hvaða stelpa þú ert. :P)

kv,

Helga


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 23:04:34 / helgah

Living is easy with eyes closed, misunderstanding all you see....

Ég er í Bítlastuði. Búin að taka fram bítlaskónna og greiða hárið í bítlagreiðsluna frægu og er núna byrjuð að hlusta á Bítlana í Itunes og dilla mér með.

Ekki alveg... er samt í miklu Bítlastuði núna. Er búin að lesa fyrir söguprófið blessaða sem er á morgunn nema eitthvað frumheimildarkjaftæði, sem er einmitt aðstæðan fyrir því að ég er hérna núna. Til að prenta út. Datt samt svo inní Bítlana á Itunes og ákvað að skella inn einu bloggi.

Náttúrufræðiprófið í dag gekk. Ekkert meira um það. Hef ekki hugmynd um hvernig mér gekk, þannig að ég ætla bara ekki að eyða meiri tíma í að hugsa um það. Er bara fegin að það sé búin og verð miklu fegnari ef ég næ svo. Verð samt ekkert voðalega hissa ef að það fer á hinn veginn.

Svo fara jólin bara að koma! Ég og Sonja ætlum að kaupa jólagjafir eftir frönskuprófið á föstudaginn og erum byrjaðar að hlakka til nú þegar. Ég þarf að kaupa jólagjöf handa Eydísinni minni og handa leynivininum mínum í systrafélaginu, þannig að það verður nóg að gera. Er búin að ákveða hvað ég ætla að kaupa en við skulum ekkert fara að publish-a það hér... maður veit aldrei hverjir lesa bloggið manns... *psst..meina Eydís og miss $%#$%" *

Jæja, ég ætla að hlusta á uppáhalds jólalagið mitt og fara að prenta. Ég er að sjálfsögðu að tala um "Do they know it's christmas?" með Band Aid 20.
Skemmtileg saga sem gerðist með það lag og mig um daginn. Var með mömmu í Rúmfatalagerinum og það var alveg pakkað af fólki með kerrurnar sínar út um allt og grenjandi börn og svoleiðis. Þið sem þekkið mig eigið að vita það að ég þoli ekki svona margmenni og það fer alveg hryllilega í mig að vera föst í svona hópi. Ég var semsagt farin að verða alvarlega pirruð þarna inni, farið að klæja í skinninu að komast út.... þegar ég allt í einu heyri þetta lag. Uppáhalds jólalagið mitt. Og allt stress og allur pirringur hvarf. Ekki af því að þetta er svo jólalegt lag og kemur með svo mikinn jólafrið og allt það crap... Heldur af því að ég mundi það að það hafa svo margir það miklu, miklu verra en ég. Hver er ég að kvarta undan svona smáatriðum?

It's Christmas time
There's no need to be afraid
At Christmas time,
we let in light and we banish shade
And in our world of plenty
we can spread a smile of joy
Throw your arms around the world
at Christmas time

But say a prayer
Pray for the other ones
At Christmas time it's hard,
but when you're having fun
There's a world outside your window
And it's a world of dread and fear
Where the only water flowing
is the bitter sting of tears
And the Christmas bells that ring there
are the clanging chimes of doom
Well tonight thank God it's them instead of you

And there won't be snow in Africa this Christmas time
The greatest gift they'll get this year is life
(Oooh) Where nothing ever grows
No rain nor rivers flow
Do they know it's Christmas time at all?

(Here's to you) raise a glass for everyone
Spare a thought this yuletide for the deprived
If the table was turned would you survive
(Here's to them) underneath that burning sun
You ain’t gotta feel guilt just selfless
Give a little help to the helpless
 
Feed the world
Let them know it's Christmastime again
Feed the world
Let them know it's Christmastime again

Feed the world
Feed the world




 




» 5 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 20:56:38 / helgah

Kári Sölmundarson er uppáhalds persónan mín í Njálu...

Búin að vera að lesa og glósa Njálu í allan dag og er þess vegna rétt komin á bls. 100. Sem þýðir að ég á 236 blaðsíður eftir OG hljóðfræði.

*geisp* nenni þessu samt varla lengur... ætla í smá pásu að horfa á eitthvað í sjónvarpinu. Samt ekki "Það var lagið" með Hemma Gunn. Ég hata þann þátt....


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 10:11:45 / helgah

damon baby...

Ég var uppí skóla í ca 9 klukkustundir í gær að læra fyrir þetta blessaða menningarfræðipróf sem hefst eftir svona um það bil klukkustund. Gaman af þessu. Tók mér samt nú ágætar pásur... fór og keypti mér að borða... fór og keypti mér Secret Window með Johnny Depp í BT.... fór og keypti mér miða á tónleika...

7.JANÚAR!

TÓNLEIKAR MEÐ HÆTTU!-HÓPNUM!

  • Damien Rice
  • Damon Albarn
  • Sigur Rós
  • Björk
  • Hjálmar
  • Múm
  • og fleiri...

Ég verð þar...

Hvar verður þú?


» 4 hafa sagt sína skoðun


Klukkan