Ójá. Ég og Eva Jóa ákváðum í dag að fara í smá keppni, svona smá
veðmál þar sem að lífið er einfaldlega ekki nógu gróft og nógu
spennandi fyrir okkur.
Áskorunin sem við völdum var skeggvöxtur. Keppninni lýkur 1.mars
og sú sem er með meira skegg það kvöld, verður sigurvegarinn.
Ég held að ég eigi bara helvíti góða möguleika... í alvöru
talað, Eva er með skeggvöxt á við 6 ára stúlkubarn. Ekki séns í
helvíti á að hún vinni mig.

Ég og Nana á Fuerte, þarna hafði ég einmitt gleymt að raka mig í
tvo daga.
Nönu fannst það bara sjúklega heitt víst....

..og hérna er Eva Jóa. Tók hana víst þrjá mánuði að safna þessu,
enda fær hún bara skeggbrodda og ekki neitt.
Iss, mér sýnist ég vera að fara að taka þetta!
