skada ikkje at prova..
09.06.2008 02:45:12 / helgah

Lagbútar, hringitónar og aðrir pirrandi hlutir.

Þegar ég byrjaði í 3.bekk í Verzlunarskóla Íslands, haustið 2003, var eitt sérstakt sem var gjörsamlega að gera allt vitlaust.
Að kalla það lag er kannski ekki rétt. Þetta er í raun og veru lagbútur sem blístraður er aftur og aftur og aftur þar til að allir í fimmtíu metra radíus eru komnir með lagið á heilann og byrja að blístra það sjálfir, þar með sjálfir aukandi þennan radíus af endalausri hringsólun þessa óþolandi lagbúts.

Ég er auðvitað að tala um hið víðfræga blístur úr kvikmyndinni Kill Bill, mynd sem var bara alls ekkert það góð (sem er í raun bara mitt álit, enda enginn sérstakur aðdáandi Quentins Tarantino). 
Verzlunarskólinn er heilmikil "gangabygging", alls staðar eru langir gangar þar sem góður hljómburður er og einnig getur verið mikið um bergmál. Það var því einstaklega vinsælt að ganga eftir göngunum þegar allir voru í tíma og blístra þetta lag. Að mínu mati einkenndist 3 bekkur af þessu. Fólki sem maður sá aldrei (þar sem maður sat fastur inni í skólastofu) gangandi eftir göngunum í Verzló, blístrandi þennan lagbút og valdandi því að maður var með þetta fast á heilanum restina af deginum, eða alveg þangað til að næsti dagur leið og maður heyrði næstu manneskju blístra.

Ég er ekki að rifja þetta upp af því að mér finnst það svo gaman eða af því að mér finnst svo gaman að kvarta út af hlutum sem eru löngu liðnir (sem er reyndar ákveðið sport út af fyrir sig). Ástæðan fyrir því að ég er að rifja þetta upp er að þetta er byrjað aftur. Nei, ég er ekki að grínast í ykkur.
Einhverjum snillingnum þarna úti fannst greinilega nóg komið af "gas!"-hringingunni sem tryllti landann svo svakalega fyrir kannski svona ca. mánuði og ákvað að draga fram þennan mest pirrandi og mest ávanabindandi hringitón sögunnar (tja, kannski fyrir utan the crazy frog. sá hringitónn átti sína spretti, varð meira að segja vinsælli en Coldplay og það er ekki eitthvað sem að allir geta sagt). Og viti menn, það vill svo "skemmtilega" til að vinnustaðurinn minn er staður þar sem eru bæði gangar og mikið af fólki sem að er alveg með alla nýjustu hringitónana á hreinu. En hvað ég er heppin.

En í rauninni er lítið sem maður getur gert nema að bíða eftir því að þessi lagbútur hverfi á ný. Það er ekki hægt að kenna neinum um þetta í raun og veru. Kannski gas-lögreglumanninum, gæti vel verið að hann væri að reyna að koma sér úr kastljósi landans með því að draga þennan hringitón fram, en maður hefur svosem engar sannanir.
Þessi lagbútur er kannski ekkert endilega meira pirrandi heldur en the crazy frog, mamma þín - hringingarnar frá Sylvíu Nótt eða gas-hringitóninn, en það er þessi tilhugsun um að hringitónninn er að komast aftur í tísku sem skelfir mig. Getum við búist við því að Kill Bill-lagið hverfi þegar að Crazy Frog komist aftur í tísku? Verður Sylvía Nótt aftur alveg "ógisslega töff" árið 2010?

Ég signi mig nú bara og vona ekki.

» 10 hafa sagt sína skoðun


Klukkan